1. fundargerð á haustönn 26. ágúst kl. 11.10
Kristinn fer yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga, undirstrikar að fulltrúar á fundinum eru fulltrúar nemenda. Rætt um fund með stjórn NFFG og öllum nefndum, nk. miðvikudag kl. 15.15 í A-307.
-
Umsóknir um leyfi
Að þessu sinni lágu 26 leyfisbeiðnir fyrir fundinum. Afgreiðsla umsókna um leyfi verður send á netfang viðkomandi nemanda. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Leyfi felur í sér undanþágu frá tímasókn en ekki námi. Leyfi vegna keppnisferða, landsliðsverkefna og þátttöku í ungmennastarfi eru afgreiddar strax en umsóknir um önnur leyfi fá ekki endanlega afgreiðslu fyrr en í lok annar. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Samþykkt leyfisumsókna er háð því að skólasókn sé að minnsta kosti 97% fyrir utan þá 1-5 daga sem sótt er um leyfi fyrir.
-
Önnur bréf
- Þrír nemendur sækja um stöðupróf í tungumálum vegna búsetu erlendis. Vísað til Huldu Sifjar, kennslustjóra erlendra mála annarra en ensku.
- Einn nemandi óskar eftir undanþágu frá dönsku. Samþykkt þar sem nemandi var með undanþágu í grunnskóla.
-
Af vettvangi NFFG
- Busavika gengur vel. Verðandi tekur þátt í vikunni.
- Næsta vika verður markaðsvika. Í hádeginu verða nokkur fyrirtæki sem verða með afslætti með kynningar.
- Undirbúningur undir nýnemaferðina gengur vel. Svipað fyrirkomulag og síðasta ár. Hún verður farin í Vatnaskóg. Umræður um skipulag. Busaball verður 17. september í Gamlabíó. Fjárhagsáætlun lögð fram. Kristinn kastar því fram að hvort ætti að byrja kl. níu og vera til kl. tólf. Rakel telur það ekki heppilegt og Hilmar telur að nemendur myndu þá reyna að fara á almenna skemmtistaði. Rakel óskar eftir að nemendur fái að mæta kl. 8.50.
- Nemendur eru önnum kafin við að skipuleggja skíðaferð í janúar. Þeim undirbúningi þarf að hraða vegna skráninga og greiðslu staðfestingargjalds.
- Árshátíð: Undirbúningur fyrir árshátíð er hafinn.
-
Önnur mál
Anna María bendir á að það á eftir að breyta upplýsingum um NFFG á heimasíðu.
Fundinn sátu:
- Anna María Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari og fundarritari
- Auður Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi
- Guðmundur S. Gíslason, verkefnastjóri
- Kristín Helga Ólafsdóttir, áfangastjóri
- Hilmar Þór Sigurjónsson, forvarnarfulltrúi
- Kristinn Þorsteinsson, skólameistari
- Kristín Logadóttir, kennari
- Rakel Eva Kristmannsdóttir, forseti NFFG
- Róbert Brink, fjármálastjóri NFFG
- Rósa Siemsen, náms- og starfsráðgjafi
- Tinna Ösp Arnardóttir, félagsmálafulltrúi