2. fundur skólaráðs - haustönn 2026

2. fundargerð á haustönn 9. september kl. 11.10

Kristín Helga Ólafsdóttir, áfangastjóri skrifaði fundargerð

    1. Umsóknir um leyfi

      Að þessu sinni lágu 16 leyfisbeiðnir fyrir fundinum.
      Afgreiðsla umsókna um leyfi verður send á netfang viðkomandi nemanda.
      Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn.
      Leyfi felur í sér undanþágu frá tímasókn en ekki námi.
      Leyfi vegna keppnisferða, landsliðsverkefna og þátttöku í ungmennastarfi eru afgreiddar strax en umsóknir um önnur leyfi fá ekki endanlega afgreiðslu fyrr en í lok annar.
      Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn.
      Samþykkt leyfisumsókna er háð því að skólasókn sé að minnsta kosti 97% fyrir utan þá 1-5 daga sem sótt er um leyfi fyrir.
    2. Önnur bréf

      • Foreldri sendir bréf til skólaráðs. Vísað til afgreiðslu hjá skólameistara.
      • Tveir nemendur sækja um að taka stöðupróf í ensku. Vísað til afgreiðslu í enskudeild.
      • Tveir nemendur sækja um að taka stöðupróf í spænsku. Vísað til afgreiðslu í deild erlendra mála.
      • Einn nemandi sækir um stöðupróf í sænsku. Hafnað skólinn er ekki með stöðupróf í þeirri grein.
      • Einn nemandi óskar eftir undanþágu frá stærðfærð. Vísað til umsagnar í stærðfræðideild
      • Einn nemandi óskar eftir undanþágu frá dönsku. Samþykkt þar sem nemandi var með undanþágu í grunnskóla.
      • Einn nemandi sækir um að fá LÍFF2le05 metið sem LÍFF1gá05 þar sem hann byrjaði á náttúrufræðibraut - samþykkt
    3. Af vettvangi NFFG

      • Félagslífið hefur farið vel af stað. Spenningur er fyrir nýnemaferðinni.
      • Nemendur leggja fram fjárhagsáætlun fyrir skíðaferðinni, skráning byrjar á föstudaginn og pláss er fyrir 135 nemendur. Greiða þarf staðfestingargjald kr. 50.000 strax um helgina.
      • Ball á fimmtudaginn í næstu viku, kennsla hefst 8:50 daginn eftir. Forsala verður fyrir nemendur FG allan mánudaginn og fyrir hádegi á þriðjudaginn.
      • FG-Flens verður 9. október
    4. Önnur mál

      • Opinn fundur verður miðvikudaginn 7. október í Hátíðarsal skólans. Forsvarsfólk nemendafélagsins mun sitja fyrir svörum ásamt stjórnendum skólans.
      • Skólaþing verður í desember. KÞ kallar eftir hugmyndum hjá nemendum um hvað þeir vilji að fjallað verði um. Nokkrar hugmyndir komu upp sem dæmi skuggafélagslíf framhaldsskólans og hraðakstur.

 

Fundinn sátu:

  • Auður Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi
  • Guðmundur S. Gíslason, verkefnastjóri
  • Kristín Helga Ólafsdóttir, áfangastjóri
  • Hilmar Þór Sigurjónsson, forvarnarfulltrúi
  • Kristinn Þorsteinsson, skólameistari
  • Kristín Logadóttir, kennari
  • Rakel Eva Kristmannsdóttir, forseti NFFG
  • Róbert Brink, fjármálastjóri NFFG
  • Rósa Siemsen, náms- og starfsráðgjafi
  • Tinna Ösp Arnardóttir, félagsmálafulltrúi