1. fundur skólanefndar 2026-2027

1. fundur skólanefndar FG á skólaárinu 2026-2027

haldinn fimmtudaginn 27. ágúst 2026 kl. 11:45.

Mætt voru:

  • Kristinn Þorsteinsson, skólameistari
  • Stefán Snær Stefánsson, formaður
  • Rakel Eva Kristmannsdóttir, forseti NFFG
  • Hulda Hlín Ragnars
  • Lilja Lind Pálsdóttir
  • Anna María Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari.
  1. Fjármál og starfsemi skólans

    Niðurstaða síðasta skólaárs var ágæt. Ekki lítur út fyrir mikinn afgang frá þessu ári. Alltaf eru einhver óljós atriði í fjárhagsáætlunargerð, t.d. vitum við aldrei alveg hvað húsaleiga hækkar mikið. Blikur á lofti um niðurskurð en 8% halli hefur verið boðaður næstu þrjú ár. Kristinn segir að erfitt sé að sjá fyrir sér að mikið verði skorið niður í fjárframlögum til framhaldsskóla.
  2. Innritun á haustönn 2026

    Innritun í FG fyrir skólaárið gekk vel. Alls bárust 1135 umsóknir, 341 sem val eitt en í samanburði voru þær 275 fyrir ári síðan. Innritaðir voru 217 nemendur frá grunnskólum víðs vegar af landinu og er þessi hópur nýnema álíka stór og sá hópur er innritaðist fyrir ári síðan. Við val á nemendum var að öllu leyti stuðst við þau viðmið sem skólinn hefur sett sér varðandi inntöku nýnema. Horft var til námsmats úr grunnskóla og var bókstöfum varpað í tölustafi samkvæmt kvarða sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) hefur gefið út. Við afgreiðslu umsókna grunnskólanemenda var farið eftir einkunnum í ensku, íslensku og stærðfræði auk frammistöðu í greinum sem tengjast umsóknarbraut. Nokkrar umræður um innritunarmál og innritunarreglur í framhaldsskóla. Skólastjórnendur munu hitta fulltrúa frá Garðabæ af sama tilefni í næstu viku.
  3. Breytingar í starfsmannamálum

    Kristinn fer yfir breytingar á starfsmannamálum sem eru óverulegar.
  4. Gjaldskrá FG

    Kristinn kynnir gjaldskrá skólans. Nokkrar umræður í kjölfarið um mismunandi gjaldtökur og álögur á nemendur milli grunn- og framhaldsskóla.
  5. Önnur mál

    Rakel Eva Kristmannsdóttir, forseti NFFG segir frá því sem efst er á baugi hjá nemendafélaginu. Það lítur út fyrir blómlegt félagslíf í vetur; busaball, nýnemaferð. Hæst núna ber undirbúningur skíðaferðar til Noregs. NFFG stendur fyrir markaðsviku í næstu viku þá verður skólaskírteini NFFG kynnt en þar bjóðast nemendum fjölbreytt afsláttarkjör.

Fundir skólanefndar í vetur eru fyrirhugaðir eftirfarandi daga. Hver fundur verður þó boðaður sérstaklega.

  • 27. ágúst 2026
  • 29. október 2026
  • 3. desember 2026
  • 4. febrúar 2027
  • 8. apríl 2027
  • 10. júní 2027

Anna María mun senda út fundargerðina.

Fundi slitið kl. 13:00