3. fundur skólanefndar FG á skólaárinu 2025 – 6 haldinn fimmtudagur 26. febrúar 2026 kl. 11:45.
Mætt voru:
- Kristinn Þorsteinsson, skólameistari
- Stefán Snær Stefánsson, formaður
- Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, forseti NFFG
- Hulda Hlín Ragnars fulltrúi í skólanefnd
- Lilja Lind Pálsdóttir fulltrúi í skólanefnd
- Tinna Borg Arnfinnsdótti fulltrúi í skólanefnd
- Rakel Steinberg Sölvadóttir fulltrúi í skólanefnd
- Sigurbjörg Stefánsdóttir fulltrúi forelda
- Snædís Snæbjörnsdóttir fulltrúi kennara
- Anna María Gunnarsdóttir aðstoðarskólameistari.
Gestir fundarins :
- Halla Stella forseti NFFG
- Tinna Ösp Arnardóttir félagsmálafulltrúi FG
- Berglind M. Valdimarsdóttir forvarnarfulltrúi FG
Dagskrá fundar:
-
Starfsemi og fjármál skólans
Kristinn fer yfir fjármál skólans. Niðurstaða síðasta árs var mun ásættanlegri en leit út
fyrir. Kappkostað er í skólanum að kennarar séu vel tækjum búnir og nú geta
kennarar valið um hvort þeir vilja apple eða pc tölvur. Í hléinu milli anna var farið í
breytingar á tveimur stofum, bætt við töflum og sett ný borð og stólar.
Stefán spyr um breytingar með mannabreytingum úr mennta- og
barnamálaráðuneyti. Kristinn sagði að skólameistarar hefðu átt einn fund með nýjum
mennta- og barnamálaráðherra og sá fundur hafi verið góður. Rætt um
nemendafjölda komandi haust.
-
Kynning á félagslífi nemenda og stuðningi við það.
Halla Stella segir frá því sem hæst
ber í starfi NFFG og nefnir íþróttaviku, böllum, FG-Flens, Morfís, Gettu betur, árshátíð
og Imbruviku. Berglind og Tinna segja frá sínu starfi. Þær eru báðar í 25% stöðu.
Tinna er tengill við nemendafélag FG og fundar með þeim einu sinni í viku ásamt
daglegum rafrænum samskiptum. Berglind er tengill við foreldrafélag skólans og
formaður heilsunefndar.
Ytri úttekt á FG í mars 2026.Spurt er um félagslíf og stuðning við minnihlutahópa.
Nokkrar umræður um það.
-
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur boðað ytra mat í FG um miðjan mars.
AMG fer yfir framkvæmdina, undirbúning og hvernig unnið verður með matsniðurstöður
til að betrumbæta skólastarfið. Matinu er ætlað að auka gæði náms og skólastarfs,
stuðla að umbótum og tryggja að réttindi nemenda séu virt og að þau fái þá þjónustu
sem þau eiga rétt á. Í framhaldi matsins verður fjallað um niðurstöðurnar í
skólanefnd.
-
Önnur mál
Anna María mun senda út fundargerðina.
Fundi slitið kl. 13:00
Fundarritari: Anna María Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari