Fundarherbergi FG – miðvikudaginn 15. apríl 2026
Mættar:
- Berglind M. Valdimarsdóttir
- Björk Baldvinsdóttir
- Hrefna Björk Ævarsdóttir
- María Jónsdóttir
- Sigurbjörg Stefánsdóttir
Fundarritari: Berglind M. Valdimarsdóttir
-
Af fyrri fundi
Rætt var um það helsta sem hefur verið í gangi í FG síðustu vikur. Foreldrakvöldið var sérstaklega tekið fyrir og talið hafa heppnast mjög vel.
-
Betri boðleiðir í gegnum spjallforrit
Lagt var til að stofna samskiptahóp á Messenger fyrir foreldraráðið á næsta skólaári. Markmiðið er að einfalda og flýta fyrir samskiptum milli funda.
-
Árshátíð nemenda
Foreldraráðið ræddi framkvæmd árshátíðar nemenda og mögulegar breytingar fyrir næsta ár.
Helstu atriði:
Skoða nýtt fyrirkomulag á miðasölu
- Mögulega gæti miðasala farið fram rafrænt
- Meta áhuga nemenda fyrir fram til að áætla fjölda gesta
- Huga að staðfestingargjaldi til að tryggja að valinn salur rúmi alla sem vilja mæta
- Árshátíðin á að vera fyrir alla nemendur
- Miðasala gæti farið fram á öðrum tíma dags, t.d. eftir skólalok, til að koma í veg fyrir að nemendur skrópi í tíma til að ná sér í miða
-
Sjóður foreldra
Staða sjóðsins er 420.000 kr.
Forvarnarfulltrúi mun skoða áhöld og búnað til afþreyingar fyrir nemendur.
- Þörf er á endurnýjun á ýmsum hlutum, t.d. borðtennisspöðum og boltum.
- Foreldraráðið fær lista til staðfestingar áður en kaupin eru samþykkt.
- Gert er ráð fyrir að verja allt að 100.000 kr. í búnað.