5. fundur skólaráðs - haustönn 2026
5. fundargerð á haustönn 21. október kl. 11.10
-
Umsóknir um leyfi
Að þessu sinni lágu sjö leyfisbeiðnir fyrir fundinum. Afgreiðsla umsókna um leyfi verður send á netfang viðkomandi nemanda. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Leyfi felur í sér undanþágu frá tímasókn en ekki námi. Leyfi vegna keppnisferða, landsliðsverkefna og þátttöku í ungmennastarfi eru afgreiddar strax en umsóknir um önnur leyfi fá ekki endanlega afgreiðslu fyrr en í lok annar. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Samþykkt leyfisumsókna er háð því að skólasókn sé að minnsta kosti 97% fyrir utan þá 1-5 daga sem sótt er um leyfi fyrir.
-
Af vettvangi NFFG
- Salsaball verður 26. nóvember í Kolaportinu. Stefán og Róbert leggja fram kostnaðaráætlun, umræður um hana og hvort mögulega ætti að fækka listamönnum um einn. Stemming verður byggð upp í vikunni áður með danskennslu, salsamat og skreytingum.
- Umræður um staðsetningu árshátíðar og mögulegar dagsetningar. Ekkert enn ákveðið í því efni. KÞ segir að áríðandi sé að dagsetning komi sem fyrst.
- Undirbúningur fyrir skíðaferð gengur vel, rætt um skíðakennslu, skíðaleigu og skíðapassa
- FG - Flens gekk vel. Aðeins skorti á umgengnina sem var mjög leitt.
- Skólaþing verður í desember. KÞ kallar eftir hugmyndum frá nemendum um hvað þeir vilji að fjallað verði um. Fundarmenn á því að helga þennan fund að einhverju leyti umræðum um forvarnir. Rætt um hraðakstur, orkudrykki, áfengis- og vímuefnaneyslu og tóbaksnotkun.
-
Önnur mál
- Fulltrúi kennara nefnir að mæting þeirra sem eru forsvari í félagslífi nemenda sé í einhverjum tilfellum mjög slæm. Um þá gilda almennar skólareglur og þeir falla undir skólasóknarreglur skólans. Umræður um hvort því eigi að breyta.
Fundinn sátu:
- Anna María Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari sem ritaði fundargerð
- Auður Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi
- Guðmundur Stefán Gíslason, verkefnastjóri
- Kristinn Þorsteinsson, skólameistari
- Kristín Helga Ólafsdóttir, áfangastjóri
- Kristín Logadóttir, kennari
- Róbert Brink, fjármálastjóri NFFG
- Rósa Siemsen, náms- og starfsráðgjafi
- Stefán Fjölnisson, varaforseti NFFG
- Tinna Ösp Arnardóttir, félagsmálafulltrúi