Vettvangsnám kennaranema

Samstarf Fjölbrautaskólans í Garðabæ og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands 

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ er einn af samstarfsskólum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands um menntun framhaldsskólakennara.
Samstarfsskólar/Heimaskólar sjá um vettvangsnám kennaranema sem er 10 ECTS einingar og tekur hver skóli árlega á móti 8 - 15 kennaranemum sem eru að undirbúa sig undir kennslu í mismunandi námsgreinum.

Vettvangsnámið nær yfir eitt skólaár.
Kennaranemar sækja vikulega fundi og kynnast fjölbreyttum þáttum í starfsemi skólasamfélagsins.
Hver nemi fær leiðsagnarkennara í sínu fagi í sínum heimaskóla. 
Þannig fá þeir tækifæri til að fylgjast með kennslustundum, mæta á kennararafundi, aðstoða við kennslu og að lokum fá þeir æfingu í að kenna sjálfir undir handleiðslu leiðsagnakennara sem eru starfandi kennarar við FG.  

Kennaranemarnir gera verkefni í háskólanum sem eru tengd með markvissum hætti skólastarfi FG. 
Samstarfið er því dýrmætt fyrir kennaranemana, starfsþróun leiðsagnakennara FG og Menntavísindasvið.

Sérstakur verkefnisstjóri hefur umsjón með kennaranemum og er í samstarfi við Menntavísindasvið og verkefnisstjóra í öðrum framhaldsskólum sem sjá um vettvangsnámið í sínum skólum.

Rakel Linda Gunnarsdóttir sér um verkefnastjórn kennaranema í FG.