3. fundargerð á haustönn 23. september kl. 11.10
-
Umsóknir um leyfi
Að þessu sinni lágu 19 leyfisbeiðnir fyrir fundinum. Afgreiðsla umsókna um leyfi verður send á netfang viðkomandi nemanda. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Leyfi felur í sér undanþágu frá tímasókn en ekki námi. Leyfi vegna keppnisferða, landsliðsverkefna og þátttöku í ungmennastarfi eru afgreiddar strax en umsóknir um önnur leyfi fá ekki endanlega afgreiðslu fyrr en í lok annar. Ekki er hægt að sækja um leyfi fyrir fleiri en fimm dögum á önn. Samþykkt leyfisumsókna er háð því að skólasókn sé að minnsta kosti 97% fyrir utan þá 1-5 daga sem sótt er um leyfi fyrir.
-
Önnur bréf
- Nemendur sem sóttu um mat á íþróttum vegna umfangsmikilla æfinga voru 94. Af þeim fengu 67 nemendur iðkunina samþykkta en 27 fengu höfnum á umsókn.
- Nemandi sem hefur undanþágu frá dönsku sækir um að fá að nota einingar úr LÍFF1gá05 í staðinn. Samþykkt en athygli vakin á að nemandi þarf átta viðbótareiningar vegna dönskunnr
- Nemandi sækir um að fá íþróttaeiningar metnar af sérnámsbraut upp í stúdentspróf. Hafnað þar sem nemandi hefur ekki lokið neinum íþróttaeiningum á sérnámsbraut. Þar að auki liggur mjög misjafn tímaflöldi að baki íþróttaeininga á sérnámsbr. og stúdentsprófsbrautum.
- Einn nemandi sækir um að taka EÐLI3ne05 á undan EÐLI3ra05 til að geta útskrifast á miðönn 27-28 á tveimur árum og tveimur önnum. Vísað til kennslustjóra í raungreinum til umsagnar.
- Einn nemandi segir sig frá námi í FG.
-
Af vettvangi NFFG
- Busaballið gekk vel og mjög margir tóku þátt. Á það var uppselt og mjög góð stemming.
- Næsta vika er íþróttavika og dagskrá á hverjum degi. Íþróttanefnd sér um hafragrautinn að því tilefni.
- Skráning í skíðaferð gekk vel og nú hafa rúmlega 100 greitt staðfestingargjaldið.
- FG-Flens verður 9. október. Að þessu sinni býður FG heim. Frí verður fyrir þá nemendur sem mæta og taka þátt.
- Opinn fundur verður 7. október. Þar verða nemendur í aðalhlutverki og kynna dagskrá framundan. Forsvarsfólk nemendafélagsins mun einning sitja fyrir svörum ásamt stjórnendum skólans.
- Skólaþing verður í desember. KÞ kallar eftir hugmyndum hjá nemendum um hvað þeir vilji að fjallað verði um. Nokkrar hugmyndir komu upp sem dæmi skuggafélagslíf framhaldsskólans og hraðakstur.
- Nemendur hafa óskað eftir að fá hengja upp stóran spegil niðri t.d. þar sem ónýtur smokkasjálfsali er staðsettur. NFFG falið að leysa málið í samráði við Stefán.
- Umræður um atburð sem forsetaembættið stendur fyrir 10. október nk. Nemendafélag fær hrós fyrir að hafa tekið vel í verkefnið. Allir sammála um að margt sé óljóst varðandi viðburðinn.
-
Önnur mál
Fundinn sátu:
- Anna María Gunnarssdóttir, aðstoðarskólameistari sem ritaði fundargerð
- Auður Sigurðardóttir, náms- og starfsráðgjafi
- Kristín Helga Ólafsdóttir, áfangastjóri
- Hilmar Þór Sigurjónsson, forvarnarfulltrúi
- Kristín Logadóttir, kennari
- Rakel Eva Kristmannsdóttir, forseti NFFG
- Róbert Brink, fjármálastjóri NFFG
- Rósa Siemsen, náms- og starfsráðgjafi
- Tinna Ösp Arnardóttir, félagsmálafulltrúi