Undanfari : MÁLV2GR05 og SKÚL2GR05 eða FATA2SG05 og TÍSK2TH05 eða LEIK3SS05 og LEIK3SK05 eða HÖNN2HA05 og SKÚL2GR05
Lýsing
Í áfanganum fá nemendur kennslu í hvernig hægt er að halda utan um vinnu sína á skipulegan hátt með stafrænum aðferðum, til dæmis með einfaldri vefsíðu og öðrum aðferðum. Hvernig setja má vinnuna upp í ferilmöppu til kynningar á sjálfum sér vegna umsókna í háskóla, þátttöku í samkeppnum, umsókna um sýningar o.s.frv. Heimasíður íslenskra listamanna verða skoðaðar, gagnrýndar og greindar.
Í áfanganum læra nemendur helstu aðferðir við framleiðslu myndbanda. Í ferlinu er farið í markvissa hugmyndavinnu, myndbyggingu, myndatöku, klippingu, lokafrágang myndar og kynningu á henni. Lögð er áhersla á að kenna nemendum að vinna myndhandrit. Nemendur vinna að fyrirfram ákveðnum verkefnum á fjölbreyttan hátt. Í öllum verkefnum er lögð áhersla á góða samvinnu/hópavinnu. Nemendum verður kynnt starfsemi fyrirtækja sem vinna að kvikmyndagerð á fjölbreyttum grundvelli og eins fá nemendur kynningu á framhaldsnámi á sviði kvikmynda- og myndbandagerðar. Íslenskir listamenn sem vinna verk með þeirri tækni sem kennd er í áfanganum verða kynntir.