FRAN1GR05 - Grunnáfangi

Undanfari : Engar

Lýsing

Megináhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði franskrar tungu og fái innsýn í menningu frönskumælandi landa. Nemendur læra m.a. að kynna sig og aðra, tala um áhugamál og frítíma, líðan, fjölskyldu sína og álit. Nemendur eru þjálfaðir í færniþáttunum fjórum; tali, hlustun, ritun og lestri. Mikil áhersla er lögð á að nemendur nái tökum á helstu framburðarreglum í þessum fyrsta áfanga.