Lýsing
París og frönsk menning eru aðalviðfangsefni áfangans. Nemendur fræðast um sögu, menningu, daglegt líf og helstu kennileiti borgarinnar. Æfð eru dagleg samskipti á frönsku, nemendur afla sér þekkingar og hagnýtra upplýsinga og vinna menningartengd verkefni við undirbúning nokkurra daga ferðar til Parísar. Á meðan á ferð stendur afla nemendur sér upplýsinga fyrir verkefni sín um leið og þeir skoða borgina og kynnast mannlífi hennar. Eftir heimkomu er unnið úr þessum upplýsingum með skriflegum og munnlegum verkefnum.