LEIK3MA03 - Leiklistarhátíð á Möltu

Undanfari : LEIK3SK05

Lýsing

Nemendur vinna leiksýningu sem þeir sýna á Holqa Theatre leiklistarhátið sem haldin er í menntskólanum Junior Collage í bænum Valletta á Möltu. Þessi leiklistarhátíð er haldin ár hvert en leiklistarbraut FG mun bjóða upp á áfangann annað hvert ár. Í áfanganum er unnin leiksýning sem sýnd verður á leiklistarhátíðinni. Nemendur vinna ásamt leiðbeinanda sjálfstætt verk út frá þemum sem tengjast hverri hátíð. Unnið er út frá samsköpun og er mikil áhersla lögð á sjálfstæði og vinnusemi. Nemendur þurfa sjálfir að standa straum af ferðakostnaði og þátttökugjöldum en leiklistarhátíðin sér þátttakendum fyrir fæði og gistingu meðan á hátíðinni stendur. Reynt verður að skipta jafnt eftir kynjum í hópinn. Eingöngu geta 20 nemendur af leiklistarbraut valið áfangann og skilyrði fyrir þátttöku eru að nemendur séu ekki hluti af leikhópi söngleiksins (á þessum tíma eru sýningar í gangi), séu 18 ára á ferðaárinu og skráðir í skólann þá önn sem hátíðin er fyrirhuguð.