Lýsing
Áfanginn er ætlaður öllum nýnemum. Hann er kenndur á fyrstu önn. Umsjónarkennarar kenna áfangann, þeir munu svo fylgja nemendum út veru þeirra í skólanum. Hugmyndin á bak við það er að nemendur kynnist vel einhverjum kennara sem þeir geta svo leitað til. Í áfanganum læra nemendur á nýja skólann, kynnast stuðningskerfinu í skólanum og því námi sem þar fer fram. Farið er í gegnum ýmis atriði sem hjálpa nemendum að fóta sig í framhaldsskóla svo sem ritvinnslu, notkun á bókasafni og námstækni. Farið verður í ýmsar forvarnir sem tengjast heilbrigðu lífi, sterkri sjálfsmynd og því að verða fullorðinn. Farið verður í nýnemaferð í upphafi annar til að hrista saman nemendur og kennara.