Undanfari : TEIK1GR05 og LITA1LT05
Lýsing
Nemendur læra að vinna á markvissan hátt með vatnsliti og akrýlliti. Farið verður dýpra í litafræði og blöndun lita en gert var í LITA2MT05 og nemendur þjálfa málun út frá breytilegum tónum, blæ og ljósmagni, m.a. með að vinna tvívíð óhlutbundin verk með áherslu á form, liti og myndbyggingu. Nemendur mála því næst tvívíð verk eftir fyrirmyndum, hlutum, manneskjum og umhverfi og styðjast einnig við eigin skissur og hugmyndir til að túlka málverk á persónulegan hátt.
Nemendur skoða verk innlendra og erlendra listamanna sem vinna með málverk og þjálfast í að greina verk þeirra með tilliti til litanotkunar og vægi litarins í myndbyggingu.
Íslenskir listmálarar verða kynntir, bæði í tímum og með sýningaferðum