TEIK1GR05 - Grunnáfangi

Undanfari : Engar

Lýsing

Í áfanganum læra nemendur grunnatriði teikningar með fjölbreyttum teikniaðferðum og teikniáhöldum, sem gagnast nemendum bæði á myndlistarsviði og Fata- og textílhönnunarsviði. Byrjað verður á að þjálfa nemendur í formskilningi með því að skoða hvernig allt í umhverfinu er byggt upp úr frumformunum hringi, þríhyrningi og ferhyrningi og læra nemendur ýmsar skyggingaraðferðir til að breyta þessum formum úr tvívíðri línuteikningu í að sýnast þrívíð á tvívíðum fleti. Nemendur læra að teikna mannslíkamann eftir lifandi módeli bæði til að þjálfa formskynjun, greina rétt stærðarhlutföll og stöður líkamans og skoða og teikna hvernig klæðnaður er teiknaður á lifandi módeli. Nemendur læra að teikna rýmið í kringum sig með því að nota eins og tveggja punkta fjarvídd í teikningu og geta þannig sett bæði hluti og manneskjur í þrívítt rými þó á tvívíðum fleti sé. Nemendur læra að vinna skissu- og hugmyndavinnu út frá eigin áhugasviði jafnt og þétt alla önnina og læra síðan aðferð við að setja þá vinnu saman í bók. Áhersla er lögð á að nemendur hengi upp verk sín og skoði þau í samhengi og þjálfist í að ræða um þau. Nemendur kynnast íslenskum samtímalistamönnum / hönnuðum bæði í tímum og með því að fara á sýningar