7. sept. 2020 Skilaboð frá skólameistara

Kæru nemendur og foreldrar

Eins og víða hefur komið fram er búið að breyta reglum um samkomur. Þær breytingar tóku gildi í dag og gilda til 27. september.  Helstu breytingar eru að nú er alls staðar í gildi fjarlægðarregla upp á einn metra og fjöldasamkomur mega verða upp að 200 manns. Þar sem eins metra reglan var í gildi skólanum frá upphafi haustannar þá verða óverulegar breytingar að þessu sinni í FG. Þær breytingar sem verða eru helstar:

  • Ekki þarf lengur að fara út til að komast í bókasafn skólans. Notast verður við hefðbundinn inngang á annarri hæð.
  • Kennarar geta kallað á fleiri nemendur í einstaka tíma, til dæmis vegna prófa.

Vonandi fáum við enn frekari opnanir á næstu vikum. Sem fyrr en afar mikilvægt að fylgjast vel með fyrirmælum frá kennurum. Sérstaklega sem von er á að nemendur verði kallaðir oftar í skólann en áður.

Mikilvægt er að halda áfram að hyggja að persónulegum smitvörnum. Við alla innganga og á öllum salernum eru spritt og því sjálfsagt að spritta hendur oft á dag. Eins er líka gott að muna að handþvottur er besta vörnin. Hægt er að sjá fjölda upplýsinga um Covid-19 á þessari síðu á heimasíðu skólans. Einnig er mikið magn upplýsinga á síðunni ww.covid.is .

B.kv. Kristinn Þorsteinsson skólameistari