Innritun

Innritun í FG á vorönn 2024

Vorönn 2024 í FG hefst 22. febrúar og lýkur 24. maí.

Innritun nemenda fer fram 20. nóvember til 15. desember.

Innritun er höfð snemma svo að nemendur geti fengið svör frá FG áður en vorönn hefst í tveggja anna kerfi. Svar við umsókn mun liggja fyrir 23. desember 2023. Afgreiðsla umsókna sést í umsóknarkerfinu sem sótt er um í.

Umsækjendur geta sótt um eða breytt umsóknum sínum á innritunartímabilinu. Einkunnir þeirra flytjast sjálfkrafa frá grunnskólanum inn í umsóknargrunninn. FG getur einnig skoðað feril úr öðrum framhaldsskólum.

Innritunin er rafræn og fer fram hér. Leiðbeiningar um innritun má fá hér

Við afgreiðslu umsókna er horft til einkunna í ensku, íslensku og stærðfræði auk frammistöðu í greinum sem tengjast umsóknarbraut. Einnig er tekið tillit til skólasóknar. Nemendur sem eru yngri en 18 ára njóta forgangs.

Allar frekari upplýsingar má fá hjá námsráðgjöfum og stjórnendum: 

  • Dagný Broddadóttir náms- og starfsráðgjafi dagny@fg.is  
  • Auður Sigurðardóttir náms- og starfsráðgjafi audur@fg.is 
  • Anna María Gunnarsdóttir aðstoðarskólameistari amg@fg.is  
  • Kristinn Þorsteinsson skólameistari kristinn@fg.is  
  • Kristín Helga Ólafsdóttir áfangastjóri kho@fg.is

Uppfært 2. okt. 2023