Skólahald 26. mars 2026

Á morgun fimmtudaginn 26. mars er gert ráð fyrir appelsínugulri viðvörun á höfuðborgarsvæðinu. Suðaustan 18-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s.
Einnig má búast við talsverðri snjókomu með slæmu skyggni og versnandi færð.
Við munum fylgjast með og láta ykkur vita í gegnum tölvupóst hver viðbrögðin verða eins fljótt og hægt er. Ef spáin gengur ekki eftir verður kennsla með hefðbundnum hætti.

Ef veðurspá eða ófærð gengur eftir færist skólahald yfir á Innu og þar gefa kennarar fyrirmæli um hvernig nemendur geta best varið tíma sínum í viðkomandi áfanga.
Ekki er endilega gert ráð fyrir netkennslu, hver kennari ákveður hvernig tími nemenda nýtist sem best.
Kennarar bera ábyrgð á að setja tilkynningu inn á Innu og nemendur bera ábyrgð á að fylgjast með.
Annað starfsfólk vinnur fjarvinnu eftir því sem við á og mögulegt er.
 
Skólameistari