Opið hús í FG

Fimmtudaginn 13. apríl býður FG nemendum í 10. bekk og forráðamönnum þeirra á Opið hús í skólanum frá kl. 16-18
Kennslustofur verða opnar þar sem gestum gefst tækifæri á að kynna sér fjölbreytt námsframboð hjá kennurum og nemendum skólans. Stjórnendur og námsráðgjafar verða einnig á staðnum til að svara spurningum. Þá verður í boði að fá leiðsögn um skólann með eldri nemendum.

Við hlökkum til að sjá ykkur