Opnun í sumar

Skrifstofa skólans verður opin frá klukkan 8 – 12 dagana 18. – 20 júní. Skólinn opnar eftir sumarleyfi fimmtudaginn 7. ágúst. Erindum sem varða innritun nýnema skal beina á netfang skólans fg@fg.is.

Greiðsluseðlar nýnema verða sendir út í lok júní.

Stundatöflur verða aðgengilegar á INNU um miðjan ágúst og bókalistar sömuleiðis.

Starfsfólk skólans óskar nemendum og forráðamönnum þeirra gleðilegs sumars.