Innritun nýnema á haustönn 2026

Innritun í Fjölbrautaskólann í Garðabæ fyrir komandi skólaár er lokið.

Alls bárust 1135 umsóknir, 341 sem val eitt en í samanburði voru þær 275 fyrir ári síðan.

Innritaðir voru 217 nemendur frá grunnskólum víðs vegar af landinu og er þessi hópur nýnema álíka stór og sá hópur er innritaðist fyrir ári síðan.

Við val á nemendum var að öllu leyti stuðst við þau viðmið sem skólinn hefur sett sér varðandi inntöku nýnema. Horft var til námsmats úr grunnskóla og var bókstöfum varpað í tölustafi samkvæmt kvarða sem Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) hefur gefið út. Við afgreiðslu umsókna grunnskólanemenda var farið eftir einkunnum í ensku, íslensku og stærðfræði auk frammistöðu í greinum sem tengjast umsóknarbraut. Umsækjendur sem eru samþykktir inn í skólann geta ekki skipt um braut á fyrsta skólaári.

Einnig var horft sérstaklega til þeirra umsækjenda sem ekki eru með íslensku sem móðurmál.

Ef einhver afþakkar pláss verður skoðað í haust hvort tekinn verði inn nýr nemandi. Nemendur sem fengu ekki umsókn sína samþykkta við skólann geta óskað eftir því að fara á biðlista ef pláss losnar. Skráning á biðlista fer fram í gegnum netfangið fg@fg.is.

Skrifstofa skólans er lokuð en svarað er í síma milli klukkan 9 og 12 til og með 24. júní.
Starfsfólk Fjölbrautaskólans í Garðabæ hlakkar til að taka á móti nýjum nemendum á nýnemakynningu skólans, föstudaginn 14. ágúst. Nánari upplýsingar um tímasetningu koma á heimasíðu skólans og í tölvupósti til nemenda og foreldra í byrjun ágúst.

 

Bestu óskir um gleðilegt sumar!