Markmið brautarinnar er að nemendur öðlist góða grunnmenntun á sviði lista með áherslu á þrjú svið, fata- og textílhönnun, leiklist og myndlist. Stúdentspróf af brautinni veitir bæði markvissan undirbúning til frekara náms í listgreinum í sérskólum eða skólum á háskólastigi auk þess sem það veitir nemendum góðan grunn undir hverslags nám og störf.
Námsmat
Námsmat er fjölbreytt og felst meðal annars í ritgerðum og ýmsum verkefnum, prófum, jafningjamati og sjálfsmati.
Reglur um námsframvindu
Nemandi þarf að ljúka 202 einingum til að ljúka stúdentsprófi. Námstíminn er að meðaltali 8-10 annir. Lágmarkseinkunn er 5,0 í öllum áföngum.
Hæfniviðmið
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að ...
- takast á við listnám á háskólastigi.
- hagnýta sér sérhæfða þekkingu, leikni, aðferðir og verkkunnáttu í þeim listgreinum sem hann hefur valið sér.
- tjá listrænar niðurstöður og miðla þekkingu um eigin verk eða túlkun á skýran, gagnrýninn og skapandi hátt.
- sýna frumkvæði og skapandi nálgun í listgrein sinni og nota fjölbreyttar aðferðir við útfærslu og túlkun.
- afla sér upplýsinga og þekkingar á skipulagðan og gagnrýninn hátt.
- setja þekkingu á sínu fagsviði í samfélagslegt og alþjóðlegt samhengi.
- sýna frumkvæði og hugmyndaauðgi í útfærslu og flutningi eigin hugverka eða túlkunar.
- taka þátt í menningu samfélagsins og gera sér grein fyrir fagurfræðilegu, siðferðilegu og samfélagslegu hlutverki listamannsins.
- kynna verkefni sín og fjalla um listgrein sína, sköpun og túlkun og staðsetja í menningarlegu og listsögulegu samhengi.
- meta listrænan styrk sinn og koma auga á hagnýtingu menntunar sinnar.
- greina, tjá sig um og meta eigin verk og túlkun og annarra af þekkingu, víðsýni og umburðarlyndi.
- setja upp sýningu eða listviðburð með eigin verkum og annarra.
KJÖRSVIÐ |
NÁMSGREIN |
|
|
EIN. |
Kjörsvið er 15 eininga val með það að markmiði að nemandinn dýpki þekkingu sína. Af þessum 15 einingum þurfa að minnsta kosti 5 einingar að vera á þriðja þrepi.
Nemandinn getur farið eftirfarandi leiðir:
-
Hægt er að taka 15 einingar í sömu námsgrein.
Dæmi: FJÖL2AJ05-FJÖL3BL05- -FJÖL3KL05
-
Hægt er að taka 5, 10 eða 15 einingar sem framhald af áfanga/áföngum sem nemandinn hefur tekið í kjarna brautar. Dæmi: ENSK3HR05 (kjarni brautar)-ENSK3US05 (kjörsvið)-ENSK3YL05 (kjörsvið). Dæmi:DANS3SO05-ÍSLE3BB05- SAGA3SS05
-
Áfangar í viðskiptagreinum, listgreinum og íþrótta-og heilsugreinum (ekki almennir íþróttaáfangar), þurfa ekki að vera í sömu námsgrein aðeins innan sama sviðs
Dæmi: MARK2AM05-STJR2ST05-FRUM3FR05
Dæmi: TEIK1GR05-LITA1LT05-LIST2FB05.
Dæmi: ÍÞRF2ÞJ05-HBFR2HE05-NÆRI2nF05
-
Undantekning frá reglunni um áfanga á þriðja þrepi er ef teknir eru áfangar í þriðja/fjórða tungumáli, í list-og verkgreinum, viðskiptagreinum eða íþrótta- og heilsugreinum.
-
Ekki má nota undirbúningsáfanga á kjörsviði.
-
Alla áfanga á þriðja þrepi má setja í kjörsvið ef nemandi hefur lokið undanförum.
|
Einingafjöldi |
|
|
15 |
FRJÁLST VAL |
NÁMSGREIN |
|
|
EIN. |
Frjálst val eru 9 einingar að eigin vali. |
Einingafjöldi |
|
|
9 |