Dimmitering, já, dimmitering!

Dimmitering vorið 2021 var með eðlilegum hætti
Dimmitering vorið 2021 var með eðlilegum hætti

Nokkuð kröftug dimmitering átti sér stað í FG föstudaginn 14.maí, en þá heimsóttu útskriftarefni skólann stutta stund og skemmtu sér með skólafélögunum. Kóvid setti strik í reikninginn síðustu annir, en nú var þetta með eðlilegum hætti.

Eins og sjá má voru búningar margskonar og halda mætti að það væru bara stúlkur að útskrifast, en svo er ekki, flestir strákarnir voru bara einhversstaðar annarsstaðar.

Próf hefjast svo í FG í næstu viku og er brautskráning þann 29.maí næstkomandi.