FG-nemar í frumkvöðlabúðum

Þær Dagmar Íris Hafsteinsdóttir og Birna Berg Bjarnadóttir, nemendur á viðskiptabraut í FG, eru nýkomnar frá Finlandi ásamt kennaranum sínum Tinnu Ösp Arnardóttur, þar sem þær tóku þátt í frumkvöðlabúðum ásamt nemendum frá fjórum öðrum framhaldsskólum, frá Noregi, Hollandi, Þýskalandi og Finnlandi. 

Heimsóknin var liður í Erasmus Evrópuverkefninu “Sustainability in the Rural Areas”, sem FG leiðir ásamt samstarfsskólum í áðurnefndum Evrópulöndum.