Dimmiterað af innlifun í FG

Hressilegur söngur í stiganum í FG
Hressilegur söngur í stiganum í FG

Það var hress hópur nemenda sem hyggur á brautskráningu sem dimmiteraði í FG föstudaginn 6.maí síðastliðinn.

Um er að ræða hóp sem telur rúmlega 100 manns, sem er með þeim stærri undanfarin ár. Tók hópurinn lagið í stiganum af mikilli innlifun, eins og myndin sýnir og eftir sönginn fóru þau svo að skemmta sér úti í bæ.

Kennslu á vorönn lýkur miðvikudaginn 18.maí og þá hefjast próf. Brautskráning fer síðan fram laugardaginn 28.maí.