Heimsókn frá Lögreglunni

Guðrún Jack og Jónas Orri Jónasson
Guðrún Jack og Jónas Orri Jónasson

Þau Jónas Orri Jónasson og Guðrún Jack frá Lögreglunni komu þann 23 .október í heimsókn í Afbrotafræði sem Gunnar Hólmsteinn kennir. Jónas vinnur í Upplýsinga og greiningadeild en Guðrún hefur unnið sem rannsóknarlögreglumaður í fjölda ára. Fræddu þau nemendur um starf lögreglunnar og var komið víða við. Jónas sýndi meðal annars tölfræði um afbrot í Garðabæ, sem kemur ágætlega út miðað við önnur svæði á höfuðborgarsvæðinu.