Jón Jónsson fræddi FG-inga um fjármál

Jón Jónsson
Jón Jónsson

Hinn þekkti tónlistarmaður Jón Jónsson er einnig hagfræðingur að mennt og fyrir skömmu kom hann í tíma í fjármálalæsi hjá Tinnu Ösp og fræddi nemendur um ýmis atriði sem tengjast því. Jón er fjölhæfur mjög, en hann er líka umsjónarmaður skemmtiþáttarins Fjörskyldan sem sýndur er á RÚV á laugardagskvöldum í vetur.