Leg kvaddi - uppselt á lokasýningu

Leg kvaddi þann 9.maí síðastliðinn. Leikstjórinn, Birna Rún Eiríksdóttir, fyrir miðri mynd (svartur …
Leg kvaddi þann 9.maí síðastliðinn. Leikstjórinn, Birna Rún Eiríksdóttir, fyrir miðri mynd (svartur jakki), en þess má geta að ung dóttir hennar tók þátt í sýningunni.

Það var mikill fögnuður sem braust út meðal leikenda og aðstandenda söngleiksins Legs, þegar ,,tjaldið féll" - en síðasta sýning fór fram fyrir fullu húsi 9.maí síðastliðinn í Urðarbrunni.

Þetta var erfið fæðing, eins og sagt er, því fyrr í vor þurfti að fresta sýningunni vegna kóvid og var tvísýnt um líf hennar.

Nú small hinsvegar allt saman og í heild voru sýndar hátt í tugur sýninga. Aðsókn var ágæt að sögn heimildarmanns fg.is og var uppselt á nokkrar sýningar.

Þetta var mikið fjör og orkan í sýningunni mikil, en tíðindamaður fg.is var á lokasýningunni. Enn ein sönnun þess að starf Verðandi, leikfélags FG, er frábært!