Mið önn - "opinn hljóðnemi" og fleira

Á fallegum haustdögum getur jafnvel bílastæðið við FG orðið fallegt. Það glittir í skólann þarna á b…
Á fallegum haustdögum getur jafnvel bílastæðið við FG orðið fallegt. Það glittir í skólann þarna á bak við litadýrðina. Um þessar mundir erum við einnig stödd í því sem kallast "jafndægur á hausti" - sem þýðir að þá eru dagurinn og nóttin álíka löng.

Þótt ótrúlegt megi virðast er haustönnin nú hálfnuð. Það þýðir að frá og með byrjun næstu viku eru aðeins fimm kennsluvikur eftir af önninni.

Í byrjun næstu viku verður einnig opnað fyrir miðannarmat, sem kennarar munu skrá á INNU á næstu dögum. Námatsdagar eru á fimmtudag og föstudag. Þá eru meðal annars sjúkrapróf.

Það hefur verið mikið um að vera í skólanum og verður þannig áfram. Á miðvikudagskvöldið verður leikfélagið Verðandi til dæmis með "opinn hljóðnema" (Open Mic) í Urðarbrunni og þar verður hægt að láta ljós sitt skína.

Fleira sem er helst á dagskrá gagnvart nemendum er að þann 9.október verður hinn árlegi FG-Flensborg-dagur og þá er yfirleitt mikið fjör. Haustfrí er svo á dagskrá þann 12.október og síðasti kennsludagur haustannar er föstudagurinn 30.október. Og svo er bara að halda áfram að læra.