Sigurbjörg Eiríksdóttir dúx á miðönn í FG

Sigurbjörg Eiríksdóttir var dúx á miðönn FG og fékk líka verðlaun fyrir skólasókn. Eins og sjá má þu…
Sigurbjörg Eiríksdóttir var dúx á miðönn FG og fékk líka verðlaun fyrir skólasókn. Eins og sjá má þurfti að notast við grímur á sviði skólans.

Alls brautskráðust 33 nemendur frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, við athöfn sem haldin var föstudaginn 26.febrúar síðastliðinn. Af þeim sem brautskráðust voru  sjö af  viðskiptabrautum,  sjö  af hönnunar og markaðsbraut, fimm af félagsvísindabraut, fimm af listnámsbrautum, fjórir af náttúrufræðibraut, þrír af íþróttabraut og tveir af alþjóðabrautum.

Það var Sigurbjörg Eiriksdóttir sem var dúx á miðönn og fékk hún einnig verðlaun fyrir góða ástundun. En fleiri fengu líka verðlaun, hér eru nokkur dæmi:

Emilía Ósk Friðjónsdóttir fékk verðlaun fyrir lokaverkefni á hönnunar og markaðsbraut og Hermann Óli Bjarkason fyrir góðan árangur í íþróttafræði.

Þá fékk Snædís Sól Geirsdóttir viðurkenningu Soroptimistafélags Garðabæjar fyrir framfarir í námi og hvatningu til áframhaldandi náms. Ávarp nýstúdents flutti svo Natalía Erla Arnórsdóttir og Mikael Bjarni Gunnarson og Sverrir Gauti Svavarsson fluttu tónlistaratriði.

Í ræðu sinni var skólameistara ástandið vegna kóvid-19 hugleikið, en hann vonast eftir að nú á vorönn, sem nýlega hófst, verði hægt að halda skólastarfi FG sem eðlilegustu: ,,Þó ég hrósi rafrænum lausnum í kennslu þá hefur verið mikið skemmtilegra í skólanum síðan nemendur sáust á göngunum. Gleði nemenda við koma aftur í skólann var auðséð og einn kennarinn sagði að þeir væru næstum því hressir á morgnana,“ sagði Kristinn Þorsteinsson, skólameistari meðal annars þegar hann kvaddi nemendur.