Stjórnmálafræðinemar á þingi

Nemendur í stjórnmálafræði hjá Gunnari Hólmsteini gerðu góða ferð á Alþingi Íslendinga miðvikudaginn 20.október síðastliðinn. Það var þingkona Viðreisnar, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, sem tók á móti hópnum og fræddi þau um starf þingsins og fleira.

Var ferðin afar fróðleg og áhuaverð, en mikið hefur gengið á í íslenskum stjórnmálum að loknum þingkosningunum, sem fram fóru í september og eftirmálum þeirra ekki lokið.