Stjórnmálafræðinemar skruppu á þing

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Tómas Leifsson ásamt stjórnmálafræðinemum frá FG.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Tómas Leifsson ásamt stjórnmálafræðinemum frá FG.

Nemar í stjórnmálafræði hjá Gunnar i Hólmsteini skruppu í heimsókn á Alþingi landsmanna við Austurvöll þann 20.september. Það var upplýsingafullrúi þingsins, Tómas Leifsson (Helgasonar) sem tók á móti hópnum.

Síðan bættist Þorbjörg Sigríður Gaunnlaugsdóttir, þingkona Viðreisnar í hópinn. Á þingpöllum svaraði hún fjölda spurninga nemenda, var um nóg að spyrja og sköpuðust skemmtilegar umræður.

Á leiðinni út rakst hópurinn svo á Andrés Inga Jónsson, þingmann Pírata sem spjallaði dágóða stund við hópinn.