Stofnun ársins: FG í öðru sæti í sínum flokki

Stjórnendur FG, Kristinn Þorsteinsson, skólameistari og Snjólaug Bjarnadóttir, aðstoðarskólameistari…
Stjórnendur FG, Kristinn Þorsteinsson, skólameistari og Snjólaug Bjarnadóttir, aðstoðarskólameistari með viðurkenningarskjalið í kepninni um Stofnun ársins árið 2020,en FG varð í öðru sæti.

Fjölbrautaskólinn í Garðabær varð í öðru sæti í sínum flokki í keppninni um "Stofnun ársins árið 2020". Stjórnendum skólans var afhent viðurkenningarskjal af því tilefni föstudaginn 16.október. Flokkurinn sem FG keppti í eru stofnanir með 50 starfsmenn eða fleiri. Sú stofnun sem vann í þessum flokki var Nýsköpunarmiðstöð Íslands, en fram kom í fréttum fyrr á þessu ári að ráðherra nýsköpuarmála hyggst leggja hana niður. Ef það gerist færist FG þá ekki upp um sæti? Er nema von að spurt sé?