Upphaf haustannar 2023

Opnað verður fyrir stundatöflur nemenda í Innu ekki seinna en miðvikudaginn 16. ágúst.

Töflubreytingar verða rafrænar að venju og verður hægt að sækja um þær frá og með 17. ágúst og til og með 22. ágúst.

Útskriftarnemendum sem telja sig þurfa á breytingum að halda er bent að hafa samband við Önnu Maríu Gunnarsdóttur aðstoðarskólameistara á sama tíma.

Kennsla hefst mánudaginn 21. ágúst með hraðtöflu sem birt verður á heimasíðu.