Victoría tók Hrekkjavökuna alla leið

Svokölluð "Hrekkjavaka" eða "Halloween" er í dag, 31.október og þá er ýmislegt brallað. Einn nemenda skólans, hún Victoría, tók þetta alla leið eins og sagt er og mætti uppdressuð og máluð í skólann. Hún veitti FG.is góðfúslega leyfi til að birta mynd af sér. Victoría vaknaði snemma í morgun og málaði sig sem aðalpersónuna, Jack Skellington, í kvikmyndinni, "A Nightmare Before Christmas" . Talið er að rætur Hrekkjavökunnar liggi í fornum hátíðum Kelta, sem er þjóðflokkur manna í Skotlandi og Írlandi.