Fésbókarhópur fyrir foreldra

Settur hefur verið upp hópur á fésbókinni fyrir foreldra nemenda í FG. Síðan á að þjóna þeim tilgangi að koma upplýsingum til foreldra um skólastarfið og eins til að stuðla að góðum samskiptum, sem og að skiptast á hugmyndum. Þeir sem vilja vera með fara inn á þessa síðu og biðja um aðgang. Hvetjum við foreldra til þess að gera það.