FG vann "FG/Flens" 2026

FG-Flens dagurinn verður næst haldinn í Flensborg að ári. FG vann í ár.
FG-Flens dagurinn verður næst haldinn í Flensborg að ári. FG vann í ár.

Hinn árlegi FG/Flens-dagur fór fram í Mýrinni föstudaginn 9.október að viðstöddu fjölmenni.

Keppt var ýmsum greinum og bar þar kannski hæst fótboltann. FG vann allar boltagreinar nema handbolta kvenna. Var niðurstaða keppninnar sú að FG vann í ár.

Svo var auðvitað grillað, þannig að enginn fór svangur heim.

,,Gamlir FG-ingar" voru á svæðinu eins og sjá má á myndinni, meðal annars fjölmiðlamaðurinn góðkunni Andri Már Eggertsson á SÝN og Gunnar Oddur Hafliðason knattspyrnudómari (mynd neðst t.h.).

Gunnar hefur meðal annars dæmt í Bestu deild karla í sumar og var að sjálfsögðu í dómarahlutverkinu á FG/Flens-deginum.