Gagnlegar upplýsingar
Inna
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ notar kennslukerfið Innu www.inna.is og eru stundatöflur, námsáætlanir og bókalistar aðgengilegir þar sem og allar upplýsingar sem lúta að náminu. Námsáætlanir og bókalista er einnig að finna á heimasíðu skólans. Mikilvægt er að skoða Innuna á hverjum degi.
Heimasíða skólans
Á heimasíðu skólans www.fg.is er er að finna allar helstu upplýsingar um skólann, námið, þjónustu og félagslífið. FG er einnig á Facebook og Instagram og mikilvægt að fylgjast með þar.

Umsjónarkennari
Nemendur eru með sama umsjónarkennara fyrstu annirnar. Á fyrstu önn hittir umsjónarkennari nemendur einnig í lífsleiknitímum og leiðbeinir þeim með það sem snýr að skólanum og náminu.
Náms- og starfsráðgjafar
Við skólann starfa tveir náms- og starfsráðgjafar í fullu starfi. Þeir hafa aðsetur á A-gangi skólans.
Hlutverk þeirra er að veita nemendum aðstoð í málum sem tengjast námi þeirra, náms- og starfsvali og lífinu almennt. Náms- og starfsráðgjafar standa vörð um velferð nemenda og eru málsvarar þeirra og trúnaðarmenn og bundnir þagnarskyldu. Þeir þurfa þó að rjúfa trúnað ef velferð nemanda er stefnt í hættu. Náms- og starfsráðgjöfum er óheimilt að veita forráðamönnum upplýsingar um nemendur sem eru 18 ára og eldri nema með skriflegu leyfi þeirra. Nemendur með námsörðugleika þurfa að ræða við námsráðgjafa og senda inn greiningar eða staðfestingu til námsráðgjafa á rafrænu formi í upphafi fyrstu annar til þess að hægt sé að veita þá þjónustu sem í boði er.
Panta tíma hjá námsráðgjöfum hér.
Náms– og starfsráðgjafar skólans eru:
- Auður Sigurðardóttir audur@fg.is
- Rósa Siemsen rosa@fg.is
- Dagný Broddadóttir (í námsleyfi skólaárið 2026-27)
Bókasafn
Bókasafnið er gegnt inngangi skólans. Um er að ræða nýstárlegt bókasafn með vinnuaðstöðu, friðarstofu og sköpunarsmiðju. Sjá nánar
Mötuneyti nemenda
Mötuneyti nemenda er á jarðhæð skólans og þar er hægt að kaupa fjölbreytta fæðu og einnig er góð aðstaða til að borða nesti.
Skólinn býður nemendum upp á frían hafragraut alla virka daga kl. 10:15 fyrir þá nemendur sem koma með sitt eigið ílát. Aðrir geta keypt klippikort í mötuneytinu.
Slóð á matseðil og verðskrá mötuneytis.
Skrifstofa
Skrifstofa skólans er opin alla virka daga frá kl. 8:00-15:30. Sjá nánar
Leiga á skáp
Nemendur geta leigt skápa á skrifstofu skólans.
Skólagjöld
Skólagjöld eru innheimt með greiðsluseðli sem fer í heimabanka forráðamanna fyrir nemendur yngri en 18 ára. Greiðsla á skólagjöldum er staðfesting á skólavist. Efniskostnaður bætist við einstaka áfanga.
Smiðja
Öllum nemendum er boðið upp á smiðjutíma í flestum námsgreinum. Smiðjutímarnir koma fram á stundatöflu nemenda. Í smiðju gefst nemendum kostur á að fá frekari aðstoð við nám sitt í fámennari hópum. Fagkennari er til staðar og leiðbeinir hverjum og einum nemanda með þá þætti sem hann þarf aðstoð með. Hverjum og einum nemanda er frjálst að mæta í smiðju þegar honum hentar en skólinn hvetur alla nemendur til að nýta sér þetta góða aðgengi að kennurum til að ná enn betri árangri í námi.