LÍFS1sf02 - Skólafærni

Undanfari : Enginn
Í boði : Vorönn

Lýsing

Áfanginn er ætlaður nýjum nemendum í FG sem eru að koma úr öðrum framhaldsskólum. Umsjónarkennarar kenna áfangann og þeir munu svo fylgja nemendum fjórar annir. Hugmyndin á bak við það er að nemendur kynnist vel einhverjum kennara sem þeir geta svo leitað til. Í áfanganum læra nemendur á nýja skólann, kynnast stuðningskerfinu í skólanum og því námi sem þar fer fram. Farið er í gegnum ýmis atriði sem hjálpa nemendum að fóta sig í framhaldsskóla svo sem ritvinnslu, notkun á bókasafni og námstækni. Farið verður í ýmsar forvarnir sem tengjast heilbrigðu lífi, sterkri sjálfsmynd og því að verða fullorðinn.

Þekkingarviðmið

  • skólanum og umhverfi hans
  • því námi og þeim námsmöguleikum sem í boði eru
  • námstækni
  • því stuðningskerfi sem skólinn býður upp á
  • því félagslífi sem í boði er
  • grunnatriðum í upplýsingatækni
  • mikilvægi heilbrigðs lífsstíls

Leikniviðmið

  • nýta sér það stuðningskerfi sem skólinn býður upp á
  • gera námsáætlun
  • beita námstækni
  • nýta sér það félagslíf sem í boði er
  • nota helstu forrit sem tengjast námi í skólanum
  • greina þætti sem leiða til heilbrigðs lífsstíls

Hæfniviðmið

  • vera virkur í skólasamfélaginu og tekur ábyrgð á eigin gjörðum
  • lifa heilbrigðum lífsstíl
  • geta dafnað sem námsmaður á framhaldsskólastigi
  • taka ábyrgð á eigin námi