Alls 40 brautskráðust - Ína Magney Dúx

Svipmyndir frá brautskráningu á haustönn 2023.
Svipmyndir frá brautskráningu á haustönn 2023.

Það voru alls 40 stúdentar sem tóku á móti skírteinum sínum við brautskráningu föstudaginn 17.nóvember síðastliðinn í hátíðarsal FG, Urðarbrunni.

Sá nemandi sem nú skaraði fram úr og vað dúx að þessu sinni var Ína Magney Magnúsdóttir, en hún stundaði nám á Listnámsbraut, myndlistarsviði. Fékk hún einnig verðlaun fyrir góðan árangur í myndlist.

Samfélagsverðlaun skólans fékk Þórður Bjarni Baldvinsson, af Leiklistarbraut, en þessi verðlaun fá þeir sem setja jákvæðan svip á skólastarfið og umhverfi hans. Þórðu Bjarni fékk einnig verðlaun fyrir skólasókn í félagi við Benedikt Björn Johnsen. Þórður var því miður ekki viðstaddur athöfnina.

Karen Ósk Kjartansdóttir flutti ræðu nýstúdents og Anna Bíbí Wium Axelsdóttir flutti heimagert atriði við hið þekkta lag ,,Nína“ (Draumur um Nínu) eftir Eyjólf Kristjánsson. Sneri hún texta lagsins upp á FG með skemmtilegum hætti.

Anna Bíbí fékk einnig viðurkenningu fyrir góðan árangur í leiklist og í íþróttum. Þá fékk Sveinn Elí Helgason einnig viðurkenningu fyrir íþróttaiðkun.

Flestir sem brautskráðust, alls 11, voru af Félagsvísindabraut, átta af Viðskiptabraut og sex af Hönnunar og markaðsbraut. Átta kláruðu íþróttabraut, fjórir af Listnámsbraut, tveir af Alþjóðabraut og einn af Náttúrufræðibraut.