Hermann Guðmundsson var með 9.6 í meðaleinkunn, dúxaði á vorönn og fékk nóg að lesa í verðlaun.
Brautskráning á vorönn 2025 fór fram í Urðarbrunni í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, laugardaginn 31.maí síðastliðinn. Um var að ræða stærstu brautskráningu í sögu skólans.
Af þeim 159 sem brautskráðust voru 49 af listnámsbrautum, 30 af viðskiptabraut, 21 af hönnunar og markaðsbraut, 18 af náttúrufræðibraut, 17 af félagsvísindabraut, 17 af íþróttabraut, fjórir með lokapróf frá FG og þrír af alþjóðabrautum. Þá voru einnig með í hópnum 13 sem luku námi á miðönn skólans.
Dúx að þessu sinni varð Hermann Guðmundsson, af Félagsvísindabraut, með um 9,6 í meðaleinkunn. Fékk hann einnig fjölda annarra verðlauna fyrir góðan námsárangur í öðrum greinum.
Semi-dúx varð svo Kalina Louisa Kamenova Mihaleva, af Hönnunar og markaðsbraut, með 9,4 í meðaleinkunn. Hún fékk að auki fleiri verðlaun fyrir góðan námsárangur.
Þrír aðrir nemendur voru með yfir 9.0 á stúdentsprófi, en þetta voru; Arndís Dóra Ólafsdóttir, Eydís Ósk Sævarsdóttir og Íris Freyja Sveinsdóttir.
Fleiri nemendur fengu síðan margvísleg verðlaun, bæði fyrir góðan námsárangur, sem og skólasókn. Sérstök verðlaun Soroptimistafélagsins í Hafnarfirði fékk Hulda Líf Bjarkadóttir, fyrir framfarir og þrautseigju í námi.
Kolfinna Björt Þórðardóttir, forseti nemendafélags FG, NFFG, flutti ræðu og þakkaði þar meðal annars fyrir samstarf nemenda og stjórnenda skólans, en NFFG stóð fyrr á þessu ári fyrir mjög vel heppnaðri góðgerðarviku, þar sem um 1200.000 krónur söfnuðust til BUGL, Barna og unglingageðdeildar Landspítalans.
Í tengslum við góðgerðarvikuna fékk Kristinn skólameistari sér húðflúr, lunda, á annan handlegginn og tók hann þar með virkan þátt í þessari vel heppnuðu góðgerðarviku, sem hann var afar ánægður með: ,,Þá var ég stoltur af mínu fólki. Nú þarf ég bara að ákveða hvaða tattoo ég fæ mér næst,“ sagði Kristinn í ræðu sinni, þar sem hann fór yfir skólaárið.
Gullmerki FG hlaut að þessu sinni Áslaug Hulda Jónsdóttir, fyrrum bæjarfulltrúi í Garðabæ, fyrir góð störf í þágu skólans, en hún hefur lengi setið í, og meðal annars verið formaður skólanefndar FG.
Eiríkur Örn Beck flutti svo ávarp nýstúdenta og tónlistaratriði fluttu þau Rakel Inga Ólafsdóttir, Eydís Ósk Sævarsdóttir, nýstúdent, Hildur Kristín Hermannsdóttir, og Mikael Steinn Guðmundsson.
Stjórn nemendafélags FG, NFFG, fékk sérstök verðlaun fyrir vel unnin störf í þágu nemenda, enda almennt talið að þessi stjórn hafi verið einstaklega góð. Í henni voru þau Kolfinna Björt, Daníel Orri, Erla Mjöll, Eva Júlía, Jónas Breki, og Kristín Jóhanna.
Í lokin stóður svo gestir upp og sungið var Íslands minni, áður en farið var út í glampandi sólina í myndatöku.
(Mynd af dúxum og Önnu Maríu Gunnarsdóttur aðstoðarskólameistara, hér að neðan)
Viðtal við Hermann Guðmundsson á MBL.is

