Styrkur úr Sprotasjóði

Tinna, Guðmundur Ingi, Fríða og Anna María
Tinna, Guðmundur Ingi, Fríða og Anna María

Fjölbrautaskólinn í Garðabæ var meðal þeirra 30 skóla sem fengu styrk úr Sprotasjóði; leik- grunn- og framhaldsskóla til skólaþróunarverkefna fyrir komandu skólaár 2025–2026.

Styrkurinn var afhentur við hátíðlega athöfn í mennta- og barnamálaráðuneytinu þann 11. júní sl. af Guðmundi Inga Kristinssyni, mennta- og barnamálaráðherra.

Veg og vanda að verkefninu eiga Fríða Gylfadóttir og Tinna Ösp Arnardóttir kennarar og kennslustjórar í ensku og viðskiptagreinum.

Markmið verkefnisins er að þróa nám og kennslu við Fjölbrautaskólann í Garðabæ, í ensku og viðskiptagreinum og nýta til þess gervigreind. Áhersla verður lögð á stafræna þróun, upplýsingalæsi og gagnrýna hugsun, uppbyggingu kunnáttu bæði hjá kennurum og nemendum og virkni nemenda. Í verkefninu verður þróað spjallmenni eða aðstoðarkennari sem verkfæri til að styðja við nám nemenda, prufa spjallmennið, gera á því nauðsynlegar breytingar og kanna hvernig það valdeflir bæði kennara og nemendur.

Á meðfylgjandi mynd má sjá þær ásamt Önnu Maríu Gunnarsdóttur, aðstoðarskólameistara taka á móti styrknum.