Vinna við umsóknir fyrir nám á haustönn stendur yfir.
Vegna inntöku á nýnemum fyrir haustönn 2025 í FG skal tekið fram að inntöku nemenda í öllum framhaldsskólum landsins lauk þann 10. júní síðastliðinn.
Nú þurfa stjórnendur skólans að vinna úr umsóknum og það tekur tíma. Sá hópur grunnskólanema sem nú var að skrá sig til náms er sá stærsti sem tekið hefur verið á móti í framhalsskólakerfinu.
Vonandi tekst að vinna úr þessu fyrir lok júní og að þá verði allt komið á hreint.
Svör munu m.a. birtast á vefsvæðinu Island.is, þar sem hægt er því að fylgjast með þessu.