Bleik bönd í minningu Einars Darra

Bleik bönd
Bleik bönd

Írena Óskarsdóttir forvarnarfulltrúi FG og Tinna Ösp Arnardóttir, félagsmálafulltrúi, gengu í stofur skólans fimmtudaginn 7.september og vöktu athygli á átakinu#égábaraeittlíf þar sem vakin er athygli á baráttu gegn misnotkun lyfja og annarra vímuefna. Verkefnið er unnið í samstarfi við foreldra Einars Darra sem lést af völdum lyfjaeitrunar þann 25. maí síðastliðinn, aðeins 18 ára gamall.