Bleikt er fallegt!

Bleiki dagurinn var haldinn hátíðlegur 21.10.2026
Bleiki dagurinn var haldinn hátíðlegur 21.10.2026

Bleiki dagurinn var haldinn hátíðlegur í FG þann 21.10, en hann er hluti af alþjóðlegri baráttu kvenna gegn brjóstakrabbameini. Um er að ræða algengasta krabbameinið meðal kvenna um allan heim. Hjá körlum er það krabbamein í blöðruhálskirtli.

Það var því mikið um bleikar ,,verur“ í skólanum og auðvitað var boðið upp á köku í tilefni dagsins, bæði hjá nemendum og starfsfólki skólans. Skreytingar voru líka bleikar.

Bleikum fána var auðvitað flaggað, en hann sást illa þegar skrásetjari átti leið hjá, það var svo mikil veðurblíða.

Bleika slaufan hefur verið alþjóðlegt tákn um þessa baráttu kvenna frá árinu 1992 og kemur upprunalega frá Bandaríkjunum.

Í ár er þetta 26.skiptið sem bleika slaufan er seld hérlendis, þetta byrjaði því hér á landi árið 2000. Og er það Krabbameinsfélag Íslands sem stendur á bak við slaufuna.