Dúxaflóð í FG

Frá vinstri: Helga Sóley Waagfjörð, Kristinn Þorsteinsson, Jónas Breki Guðmundsson, Helga Vala Ólafs…
Frá vinstri: Helga Sóley Waagfjörð, Kristinn Þorsteinsson, Jónas Breki Guðmundsson, Helga Vala Ólafsdóttir og Anna María Gunnarsdóttir, aðstoðarskólameistari, sem stýrði athöfninni.

Þrír dúxar voru verðlaunaðir á brautskráningu sem fram fór við hátíðlega athöfn laugardaginn 30.maí í FG.

Fyrir vorönn voru þau Helga Vala Ólafsdóttir og Jónas Breki Guðmundsson dúxar, bæði með 9.5 í meðaleinkunn. Helga Sóley Waagfjörð var svo dúx á miðönn með örlítið minna, eða 9.3 í meðaleinkunn. Miðönn lauk um miðjan febrúar síðastliðinn.

Alls voru 165 nemendur brautskráðir, en hópnum voru einnig nemendur sem kláruðu miðönn fyrr á þessu ári, sem voru alls 15. Stærri hafa brautskráningar ekki verið, enda dugði svið Urðarbrunns varla fyrir þennan fjölda.

Alls kláruðu 38 af viðskiptabraut, 32 af félagsvísindabraut, 29 af náttúrufræðibraut 26 af listnámsbrautum, 23 af hönnunar og markaðsbraut, 8 af íþróttabraut, 5 með lokapróf frá FG og 4 af alþjóðabrautum.

Karl Jóhann Stefánsson og Kári Hlynsson sungu fyrir viðstadda og Hildur Kristín Hermannsdóttir spilaði á píanóið undir Kára. Hafdís Ása Stefnisdóttir flutti ávarp fyrir hönd nýstúdenta og Halla Stella Sveinbjörnsdóttir flutti kveðju sem fráfarandi forseti NFFG, Nemendafélags FG. Stefán Snær Stefánsson flutti svo kveðju frá Skólanefnd FG.

Fjöldi annara viðurkenninga var veittur, meðal annars fyrir tungumál, íþróttir og ástundun náms.

Þá voru þær Anna Björg Sveinsdóttir, bókasafnsfræðingur og stærðfræðikennari og Hrafnhildur Ragnarsdóttir, sérnámskennari, sæmdar gullmerki skólans. Anna hefur unnið í FG frá 2012 en Hrafnhildur frá árinu 2001, eða í aldarfjórðung. Er þeim báðum þakkað innilega fyrir vel unnin störf.

Kristinn Þorsteinsson skólameistari fór víða í ræðu sinni, eins og hann gerir yfirleitt, var bæði hér heima og erlendis. En í lokin sagði hann: ,,Gleymið ekki að njóta lífsins. Þegar maður er ungur stendur maður frammi fyrir mörgum framtíðarverkefnum. Klára framhaldsskólann, fara í háskóla, eignast börn, kaupa íbúð og svo framvegis. Hafið í huga að leiðin að markmiðum ykkar er yfirleitt stærsta ævintýrið...Að lokum óska ég ykkur og aðstandendum ykkar hjartanlega til hamingju.“