Þátttekendur fyrir framan Bessastaði
,,Verkefnið, sem lauk nú sínu þriðja ári, hefur stuðlað að fjölda nýrra vinasambanda og eflt tengsl milli skólanna, en fyrst og fremst er það fræðandi og jákvætt og hefur aukið jákvæðan hróður FG á erlendri grundu, sem og innan hans.”
Þetta segir Rakel Linda Gunnarsdóttir, kennari og alþjóðafulltrúi í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, en þriðja starfsári verkefnisins ,,Nation building in Norway, Iceland and Spain; „mythology, language and cultural heritage“ lauk fyrir skömmu hér í Garðabæ. Það er Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins sem styrkir verkefnið.
Farið til Spánar og Noregs
Hópar menntaskólanema frá Noregi og Spáni dvöldu í um vikutíma hjá fjölskyldum í bænum, nú í apríl. Fóru nemendur meðal annars í skólann með íslensku nemendunum og gerðu sér ýmislegt til dundurs, og prófuðu í um vikutíma að lifa eins og Íslendingar. Þá kynntu þeir land, þjóð og sögu fyrir hvort öðru með ýmiskonar verkefnum.
,,Við erum mjög ánægð með útkomuna í ár og þetta gekk mjög vel allt saman,“ sagði Rakel Linda Gunnarsdóttir, og bætti við að nú stæði yfir umsóknarferli innan skólans, fyrir þátttöku í verkefninu næsta skólaár. ,,Það komast því miður alltaf færri að en vilja,“ sagði Rakel.
Síðastliðið haust fór nemendahópur frá FG til samstarfsborgarinnar Lugo í Galisíu-héraði (NV-Spáni) og dvaldi þar í um vikutíma og í janúar á þessu ári fór annar hópur til Lilleström, rétt fyrir utan Osló og dvaldi þar einnig í um vikutíma með norskum skólafélögum.
Ekki bara skóli, líka menning
,,Í ferðunum kynnast nemendur ekki bara skólastarfi, heldur kynnast þau einnig menningu og sögu landanna og þar eru jú margt sameiginlegt, en einnig hlutir sem eru sérstakir og koma nemendum, ja, spánskt fyrir sjónir, eins og sagt er,“ segir Rakel Linda í samtali við Garðapóstinn.
Hún bætir við að samskiptin og sú vinátta sem verður til, sé þó ef til vill það mikilvægasta. ,,Á þessum árum er mikið að gera í lífi unglinganna og það er mjög ánægjulegt, ef til verða tengsl og vinátta sem jafnvel endast lífið út, segir Rakel.
Þegar spænski og norski hópurinn komu hingað til lands í apríl kynntust þau skólastarfinu í FG, en einnig var farið í miðbæinn, í sund, í Bláa lónið og fleiri staði. Þá var einnig farin dagsferð, þar sem byrjað var á að þramma undir Seljalandsfoss og svæðið í kringum hann skoðað, meðal annars Gljúfrabú, semeinnig er foss. ,,Þetta vakti mikla lukku og þó þau blotni aðeins, það bara tilheyrir hér á Íslandi,“ sagði Rakel.
Íslensk náttúra og Pálínuboð
,,Frá Seljalandsfossi lá svo leiðin á Gullfoss og Geysi, en þetta eru auðvitað nátttúrufyrirbæri sem krökkunum finnst mjög gaman að komast í snertingu við og eru jú einstök á heimsvísu, þeim finnst mjög heillandi að sjá þessa gullfallegu staði og búa að því alla ævina,“ sagði Rakel.
Sameiginlegt matarboð, svokallað ,,Pálínuboð“ var svo haldið á lokakvöldinu í FG og þar svignuðu borðin undan kræsingum, farið var í karaóke og fleira slíkt. ,,Það voru allir glaðir og skælbrosandi sem gengu út úr FG þetta kvöldið og þetta setti svona punktinn yfir i-ið í verkefninu í ár, sagði Rakel Linda Gunnarsdóttir, en með henni í verkefninu starfa þau Sif Þráinsdóttir, Sigríður Anna Ásgeirsdóttir, Hilmar Þór Sigurjónsson og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson.
(Myndir hér að neðan eru frá Spáni, FG-hákarlasmökkun og Osló).

