Bjarki Freyr fékk styrk frá Háskóla Íslands

Bjarki tekur við verðlaununum, en þau veitti Silja Bára Ómarsdóttir, rektor H.Í.
Bjarki tekur við verðlaununum, en þau veitti Silja Bára Ómarsdóttir, rektor H.Í.

Bjarki Freyr Guðmundsson, fyrrum stúdent úr FG, fékk í lok ágúst styrk úr Afreks og hvatningasjóði stúdenta við Háskóla Íslands.

Styrkurinn eru veittur nýnemum við Háskóla Íslands sem náð hafa framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og jafnframt látið til sín taka á öðrum sviðum, svo sem í félagsstörfum í framhaldsskóla eða listum og/eða íþróttum.

Bjarki stundaði nám á Félagsvísindabraut í FG og kláraði vorið 2025, en stundar nú nám í sálfræði í HÍ. Í samtali við FG.is sagði Bjarki að hann gæti hugsað sér að skoða Asíu að sálfræðinámi loknu.

En Bjarki hefur einnig áhuga á að sérhæfa sig enn frekar seinna meir og segir að klínísk barnasálfræði sé meðal þeirra sviða sem hann hafi áhuga á.

FG óskar Bjarka innilega til hamingju með verðlaunin og velfarnaðar í náminu.