FG-nemendur heimsmeistarar í dansi

Nemendum Fjölbrautaskólans í Garðabæ er margt til lista lagt. Í sumar tóku sex nemendur skólans þátt í danskeppninni Dance World Cup í Dublin á Írlandi. Þær Þórey Adda, Elísabet Von, Aníta Margrét, Karen Björg, Emilía Guðbjörg og María Rún æfa allar dans hjá Listdansskóla Hafnarfjarðar. Síðastliðinn vetur og fram á sumar vörðu þær flestum stundum utan FG í æfingar fyrir keppnina. Það skilaði sér heldur betur í frábærum árangri; þær unnu tvo heimsmeistaratitla og þrenn bronsverðlaun með glæsilegri frammistöðu sinni. Auk þess var eitt atriðið þeirra valið það besta af þeim bestu á sérstakri Gala-sýningu.

Til hamingju stelpur!

Hér má lesa frétt af vef Hafnarfjarðarbæjar: Heimsmeistarar úr Hafnarfirði | Hafnarfjörður