FG, Norðmenn og Spánverjar í Erasmus-kennaraverkefni

Hópur kennara frá Noregi (Lilleström) og Spáni (Lugo), hefur verið staddur undanfarna daga í FG og hitt hóp af kennurum skólans. Er um að ræða Erasmus-verkefni sem miðar að því að eldri og yngri (,,nýir og gamlir“) kennarar hittast og læra hver af öðrum, miðla þekkingu, reynslu og annað slíkt.

Alls er um að ræða 16 manns, en þetta hefur ekki bara verið ,,skóli“ – því bæði Spánverjarnir og Norðmennirnir hafa nýtt sér tækifærið og meðal annars farið í Bláa lónið og útiböðin í Hvammsvík í Hvalfirði. Jarðböð eru jú eitt af sér einkennum landsins.

Þá hefur hópurinn líka borðað saman, því hið fornkveðna er enn í fullu gildi; ,,maður er manns gaman.“

FG-kennarar á myndinni í verkefninu eru frá vinstri: Snædís Snæbjörnsdóttir, Arnór Maximilian Luckas, Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir, Berglind M. Valdimarsdóttir og Guðmundur Stefán Gíslason (verkefnastjóri FG).